20 november 2006

Enginn farangur!

Ég hef kviðið því lengi að þurfa að burðast með allar bækurnar mínar til Niðurlanda. Á undanförnum vikum hef ég reynt að gera lista yfir þær bækur sem ég afsalút verð að taka með mér. Auðvitað verð ég að taka með mér Íslenskt mál í heild sinni (25 kg), einhverja útgáfu af Íslenskri orðabók (1-2 kg), Íslenska orðsifjabók (2,5 kg), Íslenska tungu (10 kg), Íslendingasögurnar (20 kg) og allt það (100! kg), ... og hvað með allar skáldsögurnar sem ég hef alltaf ætlað að lesa! Það er söksér að eiga þessar bækur og lesa þær aldrei - en geta lesið þær; en það er hörmulegt að vera mörgþúsund kílómetra fjarri þeim, og verða kannske að lesa þær í niðurlenskri þýðingu.

En viti menn: Niðurlönd eru siðmenntuð - þar eru nefnilega bókasöfn! Já, í Niðurlöndum keppast bókasöfnin greinilega við að viða að sér bókum, jafnvel ómerkilegustu útgefnu meistararitgerðir íslenskar má finna í þeim. Ég fann nefnilega þessa heimasíðu hér - en þetta mun vera niðurlenskur Gegnir (ég þurfti reyndar að brúka skólaaðgang til að komast inn í þennan „Gegni“ en hvað um það).

Þarna er allt!

Á bókasöfnunum hér finn ég ekki einu sinni merkilegar niðurlenskar bækur (nema Ríkið hafi komið eitthvað nærri útgáfu þeirra).