18 december 2006

Framtíðarheimili mitt

Mér hafa borist vísbendingar um mínar framtíðar-vistarverur frá SSHU (Stichting Sociale Huisvesting Utrecht), sem er einhvers konar Félagsstofnun Stúdenta / Stúdentagarðar.



Stúdentaíbúðir í Zeist (15 mín. frá miðbæ Trektar).
Að líkindum er herbergið mitt fyrir miðju þessarar myndar.1



Afar óíslenskt útsýni.1


En skemmtilegt og gezelligt að sjá.1


Þetta herbergi mun vera laust og skal verða mitt.

1Myndir teknar af gagnavarpsrás hverfisins; sjá nánar, http://www.warande.net

04 december 2006

Undur ...

... og stórmerki! Nú í fyrsta sinn á skólagöngu minni
er ég all-ánægður með öll námskeið sem ég vel á skólamisseri. Mig langar endilega að deila með ykkur ánægju minni með því að útlista þau hér, lauslega:

3. blokk: ca. febrúar-apríl

IVT-SEMANTIC STRUCTURES (200400801, 7,5 ECTS),
þ.e. við Instituut Vreemde Talen
Merkingafræði.

NED-VAN GB NAAR MINIMALISME (200400801, 7,5 ECTS),
þ.e. við Instituut Nederlands
Setningafræði.

4. blokk: ca. maí-júlí

NED-TUTORIAL LOGISCHE VORM (200500395, 7,5 ECTS),
þ.e. við Instituut Nederlands
Enn erfiðari setningafræði!

BILINGUAL LANGUAGE ACQUISITION (200400189, 7,5 ECTS),
þ.e. við Instituut Vreemde Talen
Tvítyngi - vonandi alvöru fræðilegt námskeið en ekki einhver froðufræði.

Ef ég hefði getað komið svo sem eins og einu handritanámskeiði þarna inn væri misserið fullkomið. Ég þarf að reyna að komast að því hvort fræðatröllið Andrea de Leeuw van Weenen kenni við Trektarháskóla. Mér skilst að gráðan hennar sé a.m.k. þaðan.