Jæja, það er sannarlega tími til kominn að ég skrifi eitthvað á þessa bloggrás.
Ballið í Den Bosch var mjög áhugavert. Áhugavert segi ég, jú, skemmtilegt líka — svolítið spes. Við fórum þangað þrjú og vorum komin mjög tímanlega. Svona nærri klukkan níu var byrjað að dansa, fyrst allir saman í hóp með leiðsögn tveggja hæfileikaríkra dansara. Auðvitað gekk mér hræðilega að ná sporunum, handahreyfingunum, sveiflum, víxlingum, skiptingum og að halda svo þessu öllu í takt við tónlistina. Ég segi það og skrifa, mér er músík ekki í blóð borin. Ég sé bara engin tengsl milli tónlistar og þess að þurfa, vilja eða geta hreyft sig í „takt“ við hana. Ég get kannski hreyft hendur í „takt“ við einhverja dynki sem ég heyri, en ef ég á að fara að hreyfa fætur með, og ekki líta út eins og ég sé að einbeita mér að því að skrifa óundirbúna tímaritgerð ... það er bara ekki hægt. Jæja. Þessi partur gekk þó tiltölulega vel fyrir sig. Eftir langa, sveitta og þreytandi danslotu var örlítið skipt um gír og við látin dansa leiðbeiningarlaust. Það þótti mér svo skelfilegt að ég flúði í sófa hæfilega fjarri dansgólfinu. Gerði, ef ég man rétt, tvær tilraunir til þess að fara aftur inn á dansgólfið en ég forðaði mér þaðan örskömmu síðar, enda hafði ég ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera.
En það er eitt, stór munur frá öllu því sem ég hef séð á Íslandi. Þarna var fólk aðallega á aldrinum þetta 18-25 ára, þó talsverður slatti af eldra fólki líka, 40-50 og stöku eldra ... en ekkert af þessu fólki var drukkið, né að drekka áfengi. Áfengi var þó selt þarna, meira að segja við vægu verði. Þetta finnst mér aðdáunarvert, en um leið hálfpartinn óskiljanlegt. Heilbrigð skemmtanamenning.
Héðan er annars allt gott að frétta, veðrið alveg yndislegt (það er reyndar spáð þrumum og eldingum á morgun) og ég hlakka mikið til þess að komast í frí og skoða mig betur um hérna. Mér gengur svona la-la með að ná málinu, ég skil meira og meira en mér finnst erfitt að tjá mig. Sumum finnst alveg óhemju fyndið að hlusta á framburðinn hjá mér, til dæmis hvernig ég skýt ósjálfrátt inn T í orð með SL, til dæmis sla 'kál' sem ég (og allir Íslendingar myndu) bera fram „sTla“. Ga maar sTlapen in je sTlaapkamer (þ.e. 'farðu bara að sofa í svefnherberginu þínu').
Jæja.
28 maart 2007
19 maart 2007
Vetrarhörkur
Jæja! Loksins þegar vorið hafði hafið innreið sína dundi hér á hið mesta illviðri í gær, með grenjandi rigningu og hagléljum á víxl, auk þrumna og flennistórra eldinga í um 600 metra fjarlægð. Í dag var veðrið talsvert dannaðra, og um hádegisbil hrutu hvorki meira né minna en hundslappir makindalega niður af himni. Ég spurði að sjálfsögðu hvað svona hundslappadrífa nefndist á hollensku en auðvitað eru hér engin sérstök orð um það höfð, bara blautur snjór, um 5 sentímetrar í þvermál, fallandi af himni! Jæja.
Mér þótti skemmtilegt að þetta skyldi endilega sjást í miðjum merkingafræðitíma, þar sem við vorum einmitt að ræða um ýmis fyrirbrigði sem ekki eru til orð yfir í tungumálum. Til dæmis er inni í myndinni að tungumál hafi ekki orð yfir nema 3 liti (sem eru þá svartur, hvítur og rauður, ekki fyrir tilviljun). Skemmtilegt íslenskt dæmi er liturinn „appelsínugulur“ sem engin ástæða var áðurfyrr að nefna og ekkert orð þá til yfir (enda sennilega lítið um appelsínur); þó var — og er — auðvitað hægt að lýsa honum sem „rauðgulum“.
Getur eitthvað verið fölrautt? Eða er eitthvað sem er fölrautt bara sjálfkrafa bleikt? Um þetta eru víst deildar meiningar. Ég þykist vel geta ímyndað mér að eitthvað væri fölrautt og að ég gæti haft slíkt orð um svoútlítandi hlut. (Með gamansamri einföldum gæti ég kannski lýst minni túlkun á þessum litum svona: þegar rauður er orðinn það ljós/fölur að hann er ekki lengur fallegur, þá nefnist hann bleikur.)
Jájá, héðan er allt ágætt að frétta. Ég á orðið í stórkostlegu basli með að tala ensku (sem er góðs viti!) því hollenskur orðaforði og hollensk málfræði treður sér inn í hartnær hverja setningu. Þetta er mér sérstaklega erfitt ef ég sé til dæmis tölur skrifaðar með arabískum tölustöfum, og tönnlaðist til dæmis sífellt á hollensku tölunum, sem og hikorðum og öðrum sjálfkrafa viðbragðsorðum í fyrirlestri í merkingarfræði í síðustu viku. Þetta fer bara versnandi, Guði sé lof.
Á næstunni þarf ég að komast langt með að berja saman tvær meðalstórar ritgerðir um efni sem ég hef varla hundsvit á, þreyta (heima)próf um þarnæstu helgi sem ég mun svo sannarlega skríða á (ef ég næ þá svo langt) enda hefur kennarinn þegar lýst því yfir að hann eigi sjálfur í basli með að leysa það innan gefinna tímamarka. Sennilega er setningafræði ekki mín deild eftir allt saman, en það er þá ágætt að vita (þó) það.
Hins vegar stendur líka til að fara á einhvers slags (víkinga)danshátíð á föstudagskvöld í Den Bosch þar sem einn húsfélaga minna starfar sem víkingur. Einnig kemur til greina að fara á tónleika með færeysku hljómsveitinni Tý (eða segir maður núorðið bara með Týr? — þannig er það a.m.k. ábyggilega á færeysku) í Arnhem, en ég er svolítið smeykur við kannabisreykingarnar sem vafalaust sjást þar meira en ég sé nú þegar á götum úti.
Þar sem fólk hefur verið að spyrja um símanúmerið mitt endurtek ég það hér enn og aftur:
+31 648 217180
(hins vegar er meira vit í að nota Skype þar sem ég er á skrá, heimsinn)
Að lokum þetta: ég held að mér finnist ekki að Kennaraháskólinn og Háskóli Íslands ættu að ganga í eina sæng. Eiginlega finnst mér það uggvænlegt ef ég hugsa til nokkurra kennaraháskólanemenda sem ég vann í námunda við á síðasta skólamisseri. Mér sýnist þeir vera í námi í allt öðrum tilgangi en gengur og gerist innan veggja Háskólans. (Hitt er svo annað mál að e.t.v. væri ég betur geymdur í Kennaraháskólanum.)
skrifaði
Heimir Freyr
kl.
21:13
8
skilaboð
13 maart 2007
Vorboðar
Jæja, nú er náttúran svo sannarlega farin að taka við sér, krókusar spretta upp eins og gorkúlur (þær hef ég reyndar ekki séð hér), og páskaliljur og fífilsafbrigði, ásamt ýmsum öðru sem ég þekki ekki, og sólin skín eldheit eins og um sumar. Í gær var ég alveg að leka niður í Trekt vegna hita, búinn að troða því sem hægt var af spjörum ofan í skólatöskuna. Í morgun fengum við húsfólkið okkur morgunmat úti á eldhússsvölum og ég sat svo í stuttbuxum einum fata úti á herbergissvölunum að (reyna að) lesa. Og það er mars! Niðurlendingarnir virðast þó vera eitthvað kulvísari en ég því mér sýndist fólk ganga um kappklætt í götunni þó það væru rúmar 15°C gráður í forsælu, heiðskýrt og næsta vindlaust.
Til sönnunar því að vorið hefur hafið hér innreið sína er hér mynd af krókusum sem ég tók í Trekt í gær (sjá stærri gerðir og fleiri myndir á Flickr-rásinni):
Ný myndaalbúm á Flickr: Dordrecht (7) og Einn sólríkan vetrardag (6)
skrifaði
Heimir Freyr
kl.
16:34
2
skilaboð
08 maart 2007
FlickrrrRRR!
Jájá, ég veit að ég hef sagt að ég vilji ekki nota Flickr en „það ótrúlega hefur gerst“! Ég er kominn með Flickr-rás:
http://www.flickr.com/photos/hfv/
Þarna má nú sjá myndir af tunglmyrkvanum 3. mars, séð af svölunum í Zeist. Ég mun í framtíðinni setja tilkynningu hér ef ég bæti myndum þarna inn.
(Flickr (flikker) er ekki gott nafn á myndaþjónustu ef maður talar (eða skilur) hollensku)
skrifaði
Heimir Freyr
kl.
00:40
1 skilaboð
07 maart 2007
Niðurlenska þjóðarsálin
Hér er val í hávegum haft. Kannski er það líka svo á Íslandi, ég veit það ekki, og tengist sennilega almennu frjálslyndi, en mér finnst þetta einkenna hina niðurlensku þjóðarsál (ég hef svo gaman af alhæfingum). Augljóst er að sjálfsögðu það val að mega neyta fíkniefna sem yfirleitt eru bönnuð meðal siðaðra þjóða (en það kemur þó að öllum líkindum ekki til af þessari valhneigð heldur fremur af öfgafullum pólitískum stórslysum á afmörkuðu tímabili — það hefur þó að minnsta kosti ekki verið afturkallað) — nei, þetta sést víðar. Hér er mælst til þess að fólk aki með ljós á bifreiðum sínum yfir daginn, en þess er ekki krafist. Það er auðvitað víðar svo. Þegar kveikt er á tölvunum úti skóla er notandinn spurður:
Viltu ræsa upp í Windows- eða Linux-stýrikerfinu?
Mér krossbrá fyrst þegar á sá þetta og fyrsta hugsun: hvers vegna í ósköpunum skyldi mig langa til þess að ræsa upp í Linux? En þetta er í sjálfu sér gott val og heilbrigt. En þetta er dýrt val, það er hreint ekki hlaupið að því að halda tveimur kerfum á hverri tölvu rétt gangandi, en í ljósi valhneigðarinnar er þetta skiljanlegt. Að sama skapi eru aðrir möguleikar í boði með mikið notuð forrit, til dæmis er á öllum tölvum hægt að velja hvort maður vill heldur, Firefox eða Internet Explorer. Þeir virðast þó ekki ganga svo langt að bjóða Mac eða PC, en hver veit nema það leynist í einhverjum tölvustofum ...
skrifaði
Heimir Freyr
kl.
19:05
0
skilaboð
06 maart 2007
Íslenska
Ég reyni svolítið að fylgjast með því sem er að gerast í íslenskum fjölmiðlum héðan úr Hollandi og ég vil hérmeð mótmæla þeirri misnotkun blaðamanna á íslensku máli sem felst í orðalaginu skjóta einhvern. Dæmi um þessa misnotkun er í eftirfarandi fréttagrein tekinni af www.mbl.is:
„Lögreglan í Kaupmannahöfn sleppti í dag úr haldi úrsmiðnum Michael Woollhead sem setið hefur í varðhaldi síðan 16. janúar. Mál Woollhead hefur vakið nokkra athygli í Danmörku en hann var handtekinn eftir að hann skaut tvo menn sem hugðust ræna verslun hans. Vefsíða Ekstrabladet segir frá þessu.“
Þetta merkir fyrir mér, eins og flestum sem á annað borð hafa íslensku að móðurmáli: úrsmiðurinn drap bófana. Seinna segir hins vegar:
„Woollhead rekur verslunina Vintageure við Kompagnistræti í Kaupmannahöfn, þann 16. janúar sl. ruddust inn í verslunina þrír menn, ættaðir frá A-Evrópu og höfðu í hyggju að ræna verslunina. Woollhead brást hinn versti við, dró upp skammbyssu og skaut á mennina. Einn mannanna fékk byssukúlu í handlegg, en annar í handlegg og bak.“
Að skjóta einhvern og að skjóta Á einhvern er ekki það sama, þó að e.t.v. sé það svo á dönsku eða ensku.
Þetta er eins og litlu börnin segja þegar þau klaga félaga sína eftir illar viðureignir í frímínútum: „Hann kyrkti mig!“
skrifaði
Heimir Freyr
kl.
10:37
4
skilaboð
04 maart 2007
Skyldurækni
Jæja, það hefur verið lítið um dýrðir á þessari gagnavarpsrás undanfarið og kannski tímabært að bæta ögn úr því.
Mér gafst svolítið svigrúm til þess að reyna að lesa mér til aukins skilnings afturábak í setningafræðibókinni, þ.e. kaflana sem við erum búin að lesa. Það hefur hins vegar ekki gengið sem skyldi. Ég mun því sennilega bara verða að halda enn áfram að böðlast í gegnum kaflana með hundraðþúsund spurningar ... ég held sveimérþá að Noam Chomsky og félagar myndu fá að kenna á því ef galdrabrennur væru enn við lýði — mér finnast þessi fræði helst til galdrakennd, skvíssbæng- og töfralausnir við vandamálum. Svo var ég fyrir skemmstu að lesa að sú aðferð sem bókin ætlaði að beita við að gera grein fyrir setningum réði ekki við setningar á borð við: „Það hefur einhver étið hákarlinn“ og einfaldlega verður látið þar við sitja. Ég skil svo sem af hverju, en það er sama.
Núna á mánudaginn (á morgun) þarf ég fyrir klukkan 10:50 að vera búinn að ákveða um hvað ég ætla að skrifa lokaverkefni í merkingarfræðinámskeiðinu og sennilega verða bannsettu afturbeygðu fornöfnin fyrir valinu eina ferðina enn. Mig langar kannski að vinna það verkefni út frá tveimur greinum sem telja sig geta útskýrt afturbeygingu í íslensku (meðal annars) og sjá hvort ég geti ekki fundið eitthvað að þeim greinum og/eða betrumbætt eitthvað. Í annarri voru mjög svo undarlegir hlutir sagðir um íslensku sem þarf að skoða nánar, enda er höfundurinn ekki talandi á þetta ágæta mál.
Í gær lærði ég ekkert „ógagnlegt“, en af gagnlegu lærði ég að baka gulrótaköku sem ég fann uppskrift að á heimasíðu Námsgagnastofnunar (sjá stóra PDF-skrá hér, þar eru uppskriftir að ýmsum góðum réttum, kökum og þess háttar, sumum vafalaust mjög kunnuglegum). Ég get óhikandi mælt með þessari uppskrift. Ég sá líka tunglmyrkva í gærkvöldi á tímabilinu 22:30 til 0:20 (þegar hann náði hámarki), sem var stórskemmtilegt, enda blasir tunglið við mér þegar ég stend úti á svölum. Veðrið alveg óaðfinnanlegt og það var hæfileg kyrrð yfir hverfinu enda fara flestallir niðurlenskir stúdentar heim til sín um helgar.
Í vikunni (seinnipart) fer ég til 's-Gravendeel vegna veislu ömmu Jolöndu, þ.e. Omu Feestar í tilefni 88 ára afmælisins. Afmælið er um helgina en ég fer fyrr. Það skýrir því sambandsleysið ef einhver vill ná tali af mér; ég á óhægt með að vera í gagnavarpssambandi í 's-Gravendeel.
Það minnir mig á það að ég hef ekki gefið upp hérlent símanúmer mitt, en það er:
+31 6 48 21 71 80 (ef hringt er frá útlöndum)
Ég kýs heldur að fá send SMS en símhringingar, enda er alveg rándýrt að nota þessi skrapatól og merkilegt nokk dýrara hér. Þó sýnist mér það notað ámóta mikið.
Ég nenni ekki að setja inn myndir að sinni — þið sáuð tunglmyrkvann á Íslandi hvort eð var en hér náðust þó skemmtilegar myndir af honum.
skrifaði
Heimir Freyr
kl.
14:57
1 skilaboð
27 februari 2007
21 februari 2007
Kjötkveðjuhátíð
Jæja. Í gær var hér haldið upp á sprengidaginn með kjötkveðjuhátíð, sums staðar með talsverðum látum. Ég fór ásamt Jolöndu og einum herbergisnágranna minna til 's-Hertogenbosch (Den Bosch) vegna þess að þar ku vera mest fjörið. Ferðin þangað gekk vel, strætisvagninn og lestin hvort um sig þéttsetin. Í lestinni voru ýmsir kynlegir kvistir, karlmenn í furðulegum klæðnaði, sötrandi bjór og með læti - nokkuð sem ég hef bara varla séð hér fyrr (þeir reyndust svo vera Bretar, sbr. athugasemdir hér fyrir neðan). Veðurspáin hafði verið þónokkuð slæm en í Den Bosch var mikil veðurblíða, hlýtt og bjart yfir öllu. Borgin er mjög lík öllum öðrum stöðum sem ég hef komið til hér, en þó mátti greina örlítil líkindi með byggingastíl sumra húsa í gamla austurhluta Reykjavíkur. Þarna búa um 105 þúsund manns svo stærðargráðan er einnig svipuð.
Á Íslandi er flest allt í tengslum við búninga ætlað börnum, en í Den Bosch var það alls ekki svo; mest voru þetta karlmenn í búningum, með bjór í annarri og sígarettu í hinni, stundum með eitt eða tvö börn, eða konur með það sama í höndunum en oftar einnig karl í eftirdragi. Þetta virtist fara fram án mikillar ölvunar en mér þótti samt skrítið að sjá hvernig fólkið hagaði sér að börnunum ásjáandi. Þarna voru markaðir, skrúðgöngur, mikið sungið og dansað. Í sambandi við markaðina finnst mér svolítið spes að maður má eiginlega ekki skoða neitt þar nema maður ætli sér að kaupa það. Ég verð alltaf svolítið forvitinn þegar ég sé til dæmis fiskborð, svona til þess að sjá hvað er á boðstólum og hvað það kostar, en „ég er bara að skoða“ er ekki vinsælt svar við spurningu um hvað megi bjóða mér. Í gær fékk ég til dæmis mjög kalt svar, nefnilega: „Óó. Skemmtilegt.“. Jæja, fleiri myndir:

Skemmtileg þessi hangandi tré sem eru yfirleitt nærri vötnum, það ku vel vera hægt að sveifla sér í þessum greinalengjum:

Við skoðuðum líka skemmtanahaldið í Trekt, sem var talsvert öðruvísi, og ég gerðist svo frægur að fá mér flæmskar franskar með hollensku majónesi. Franskarnar voru ljúffengar af frönskum að vera, mjög gildar og þar af leiðandi mun „kjötmeiri“, og majónesið passaði mjög vel með.
Í Trekt og víðar er talsvert af gömlum Volvóum, ég sakna þess alltaf að vera ekki með myndavélina á mér en ég náði hér einum flottum:
skrifaði
Heimir Freyr
kl.
17:10
9
skilaboð
15 februari 2007
Rútína
Jæja. Nú er lífið hér í Niðurlöndum að komast í fastari skorður - mér liggur við að segja festast í rútínu, og það er bara ágætt. Mér hefur tekist ágætlega að aðlaga mig að ofurlítið breyttu starfsfyrirkomulagi frá því sem var í Háskólanum, þ.e. að fyrirlestrar séu aðeins á mánudögum (það er þó bara tilviljun, engin regla), en aðra daga sit ég í minni lesstofu (heima) og hamast við að lesa eitthvað sem ég engan veginn skil, en ég reyni. Tímarnir fara þó fram á ensku (ekki að minni beiðni) en lesefni er sumpart á hollensku, en ávallt eitthvað sambærilegt á ensku líka. Ég rembist þó við að tala hollensku við allar aðstæður - nema í tímum, það gera ekki einu sinni hollensku nemendurnir.
Ég verð þó þónokkuð fyrir því að fólk reyni að tala við mig ensku, sennilega af góðvild, en ég varð upp með mér þegar starfsmaður í verslun sagði við mig: „Þú ert alveg pottþétt frá Belgíu!“ - Belgar tala líka einhvers konar hollensku ...! En það er rétt, flæmskur framburður er mun auðveldari Íslendingum, líkari íslenskum framburði. Ég vona bara að starfsmaðurinn hafi ekki átt við mann úr frönskumælandi hluta Belgíu, þá er þetta móðgun!
En, tvennt þarf að leiðrétta í tengslum við nám.
Í fyrsta lagi eru samgöngur hér vissulega „alveg fríar (með nokkrum takmörkunum)“ fyrir nemendur, en aðeins hérlenda nemendur. Ég þarf að borga eins og aðrir. Það er því mjög heppilegt fyrir mig að ég þurfi bara að mæta á mánudögum „í skólann“, því ég hjóla þangað (það tekur um 30+ mínútur eða svo).
Í öðru lagi fá nemendur ekki að prenta og ljósrita ókeypis gegn framvísun sérstaks stúdentakorts, eins og mér hefur margsinnis verið sagt. Það er svolítið merkilegt hvernig hægt er að teygja og skrumskæla merkingu orðsins „ókeypis“. Ef eitthvað er ókeypis, þá þarf maður ekki að borga - eða sú er merking orðsins fyrir mér. Hér er sumsé frítt að ljósrita og prenta að því leyti að maður þarf ekki að greiða sérstaklega fyrir að fá að ljósrita og prenta. Hins vegar þarf að greiða fyrir þann verknað að ljósrita og prenta. Með öðrum orðum: það þarf að greiða fyrir það að ljósrita og prenta. Það er ekki frítt á nokkurn hátt; ekkert frekar en það sé frítt að versla. Ef orðalagið „ókeypis“ væri almennt notað á þennan hátt mætti auglýsa: „Komdu til okkar og kauptu frítt inn!“ Það merkir þá 'þú greiðir ekkert fyrir það að kaupa af okkur; þú greiðir bara fyrir það sem þú kaupir'. Hm!
Jájá, ... veðrið hérna er ákaflega milt og fallegt. Það á samt ekki að vera svona, ekkert frekar en almenna snjóleysið á Íslandi. Hér eru flugur og köngulær sem eiga alls ekkert að vera á sveimi á þessum árstíma, ég vaknaði meira að segja við það að vespa sýndi annarri minna tveggja handa óþarflega mikinn áhuga einn morguninn, en ósjálfráðar handahreyfingar mínar hafa sennilega orkað „hafnandi“ á hana, og það hefur aftur fengið svo á vængjað greyið að það sprakk af harmi á skrifborði nærri beði mínum eigi alllöngu síðar - ekki séð vespur síðan.
Hér virðist vera haldið upp á valentínusardaginn - að minnsta kosti var 50% aukning á sendum SMS-símskeytum miðað við venjulega miðvikudaga og þónokkuð um karlmenn vappandi um með rósir. Ég veit ekki hvernig þetta er að verða á Íslandi, en mér heyrðist Óli Palli vera að reyna að hvetja til þess fremur en letja á Rás 2 í gær, m.a. með því að benda á að þetta er ekki bandarískur siður.
Jájá, ég hef semsagt ekkert að segja.
skrifaði
Heimir Freyr
kl.
17:16
1 skilaboð
