Jæja, við komum heim úr helgarferð seint í gærkvöldi og það var rosalega skemmtilegt. Við fórum 6 saman, þrennt af hvoru kyni, yfir um til Texel með ferju í kringum hálfátta á föstudagskvöld og áttum þar rólega kvöldstund. Veðurspáin fyrir helgina var alveg ótrúleg, um og yfir 25°C hiti alla helgina -- og svo heitt var það (og sennilega heitara því þegar við fórum heim á sunnudagskvöldið og sólin löngu sest var hitinn enn 24°C...).
Á laugardaginn leigðum við hjól og fórum í einhvers konar sædýragarð, þar sáum við seli, fugla, fiska, krabba, froska og önnur vatna- og sjávardýr af ýmsu tagi. Mjög skemmtilegt. Svo hjóluðum við meira um eyjuna, í bæinn De Koog þar sem við kíktum í nokkrar búðir og fórum svo á ströndina. Bæði í De Koog og á ströndinni var talsvert margt fólk en það var þó vel hægt að vappa um ströndina. Sérstakt að sjá svona alltöðruvísi sand og svoleiðis. Á heimleiðinni fórum við í stórmarkað og keyptum í matinn, ég fékk mér líka einhverskonar sólhatt og baðskó því hitinn var að drepa mig. Svo fórum við heim og borðuðum. Um kvöldið hjóluðum við aftur á ströndina til þess að fylgjast með sólsetrinu, sátum svo á mannlausri ströndinni í myrkrinu með snakk og drykki. Eftir það tvístraðist hópurinn, annar helmingurinn fór í bæinn að skemmta sér að íslenskum sið, hinn hópurinn (með Íslendinginn innanborðs) fór heim að spjalla og snemma í háttinn því að hann ætlaði snemma á fætur daginn eftir og hjóla meira um eyjuna.
Snemma morguninn eftir fór reglusami hópurinn út, keypti kort af eyjunni og hjólaði norður eftir eyjunni og að áhugaverðum stöðum. Hitinn var næsta óbærilegur á köflum (ég auðvitað sólbrann þrátt fyrir að hafa atað mig allan út í sólolíu), þannig að við sóttum í leiðir í gegnum skógarþykkni frekar en annað, en þess var yfirleitt ekki kostur. Á leið okkar eftir ströndinni austan megin var mikið af kindum og nýfæddum lömbum, mjög krúttlegum. Þessi eyja er reyndar þekkt fyrir kindamergð, og gengur hálfpartinn undir nafninu „fjárey" þess vegna. Merkilegt nokk sá ég bara eina vindmyllu á eyjunni (óvenjulegt), en í staðinn komu gríðarstórir háhollenskir túlípanaakrar í öllum regnbogans litum (og fleiri litum til). Síðdegis, að sextíu funheitum kílometrum liðnum, fórum við svo heim að baka hollenskar pönnukökur (með eplum; nautahakki; osti; súkkulaðihöglum (hagelslag); sírópi; flórsykri ...). Um áttaleytið tókum við svo ferjuna heim og vorum komin til 's-Gravendeel um hálfellefu á sunnudagskvöld.
En, á föstudaginn litum við Jolanda líka aðeins á Amsterdam ... hvílík og önnur eins borg! Ha, hjálpi mér.
Má bjóða einhverjum sleikjó?
Ég fékk þvílíkt menningarsjokk að ég var næstum allan daginn að ná mér. Eins og þið getið fullvissað ykkur um með sjónrænum sönnunargögnum
Flickr-rásinni var þarna ýmislegt misjafnt, ... þarna á ósköp venjulegum blómagötumarkaði var hægt að kaupa sér kannabisplöntur, kannabisfræ („Grow your own kannabis, starter kit“), kannabis
sleikjó, kannabisskífur, kannabiste, sveppate og ég veit ekki hvað og hvað; eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég sá líka nokkur málverk, en það má kannski segja að þessi ósköp hafi svolítið eyðilaggt stemninguna, sem og lyktin.
Það er gott að búa í Hollandi ... hm!